• Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • red color
  • green color
FRÉTTAVEFUR SUÐURLANDS
SUD.IS / SUDURLAND.NET
miðvikudagur
20
ágú
Ný flugbraut á Sandskeiði PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ól. Þ. Ólafsson.   
laugardagur, 24 maí 2008

Image Ný flugbraut með bundnu slitlagi á Sandskeiði var formlega vígð í dag og er hún við hlið grasbrautarinnar fyrir svifflugur sem þar hefur verið í áratugi. Nýja brautin er ætluð vélflugum og verður opin öllu kennslu- og æfingaflugi.

Svifflugfélag Íslands hefur um árabil haft aðstöðu sína við flugvöllinn á Sandskeiði og klipptu þeir Kristján Sveinbjörnsson, formaður félagsins, og Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri flugvalla- og flugleiðsögusviðs Flugstoða, á borða við vígslu vallarins að viðstöddum gestum.

Nýja brautin sem er tæplega 700 metra löng er liður í þeirri áætlun Flugstoða að létta álagi og draga úr truflun af hávaða á Reykjavíkurflugvelli með því að beina snertilendingum og öðru kennsluflugi frá vellinum. Á síðasta ári voru snertilendingar á Reykjavíkurflugvelli 17.929 talsins sé hver lending og hvert flugtak talið ein snerting.

Kristján Sveinbjörnsson segir vélflug og svifflug vel eiga að geta farið saman á flugbrautunum á Sandskeiði. Gera megi ráð fyrir að æfingaflugið á vélflugum geti farið fram alla daga og svifflugmenn séu einkum á ferðinni um kvöld og helgar og að með stjórnun umferðar eigi umferðin að ganga vel fyrir sig.

Kostnaður við brautarlagninguna er alls 28 milljónir króna. Verið er að setja upp sjálfvirka veðurstöð á vellinum og er kostnaður við hana kringum 12 milljónir króna. Hönnun og eftirlit brautarinnar var í höndum Verkfræðistofunnar Hönnunar en Klæðning sá um lagningu slitlags.

Síðast uppfært ( laugardagur, 24 maí 2008 )
 
< Fyrri   Næsti >
Smelltu á bannerinn til að skoða úrvalið af frábærum fatnaði hjá Ice Fin

Innskráning

Muna eftir mér
Ekki með aðgang? Búðu til einn

Skráðu fría auglýsingu með mynd! SMELLA HÉR

Smelltu hér til að sjá hvaða kvikmyndir eru til sýninga í Selfossbíó
Smelltu á linkinn til að senda inn viðburð!
 
Dýralæknaþjónsuta Suðurlands að Stuðlum, rekur einnig verslun með fóður og gæludýravörur!
Netverslun Tómstundahússins, þar sem ALLT fæst
Skemmtun sem kemur adrenalíninu af stað í stórum skömmtum!!!!
Þarftu að lyfta þér upp. Smelltu HÉR!

Smelltu hér til að skoða frábæru tepping frá Strönd. Teppi á stiga og ganga einnig klæðningar, Sisal mottur, teppaflísara og fl.
Gámar og færanlegir verktakaskúrar og m.fl.
Smelltu á myndina til að sjá heimasíðu Örvéla!
Ný uppgert hús til leigu á besta stað í Kaupmannahöfn! Fullbúið heimili fyrir alla fjölskylduna er besti kosturinn þegar fjölskyldan fer í frí!
lrhenning