| Dagskráin |
|
|
|
| Skrifað af Trond | |
| þriðjudagur, 11 desember 2007 | |
|
Dagskráin er öflugt frétta- og auglýsingablað sem dreifist inn á öll heimili og fyrirtæki á Suðurlandi. Blaðið er í dagblaðsbroti og hefur hlotið viðurkenningu frá auglýsendum og lesendum fyrir stílhreint útlit og góða prentun.
Dreifingarsvæðið eru Árnes-, Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýsla, auk þess sem blaðið liggur frammi í stærstu verslunum og þjónustustöðum á Selfossi og nágrenni. Þá er blaðið sent til áskrifenda um allt land og víða erlendis. Dagskráin er einnig gefin út á pdf-formi á www.sudurland.net og á www.prentmet.is. Blaðið kemur út á hverjum fimmtudegi og er gefið út í 8.500 eintökum. Dreifing fer fram á fimmtudögum allt árið og berst Dagskráin inn á öll heimili og fyrirtæki á svæðinu. Skilafrestur auglýsinga er á hádegi á þriðjudögum.
Skorin stærð Dagskrárinnar er 28 x 44 cm
Auglýsingasíminn er 482-1944 og faxið 482-2835. Hægt er að lesa nýjasta eintak blaðsins HÉR |
|
| Síðast uppfært ( fimmtudagur, 27 mars 2008 ) |
|
|