|
Æsi spennandi úrslit í töltinu og frábær stemming. |
|
|
|
|
Skrifað af Ól. Þ. Ólafsson.
|
|
laugardagur, 05 júlí 2008 |
|
Það streymdi inn fólk úr öllum áttum til að fylgjast með töltúrslitum sem voru í þann mund að klárast! Sigur úr bítum með einkunn upp á 8,83 er enginn annar en Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi.
Þorvaldur Árni Þorvaldsson og Rökkvi frá Hárlaugsstöðum fengu annað sætið en hann fékk meðal annars tvær 10 fyrir yfirferð en fékk í heildina 8,78.
Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi sýndu góða takta og enduðu í þriðja sæti með 8,44
Jón Páll Sveinsson og Losti frá Strandahjáleigu stóðu efstir eftir hæga töltið en aðrir náðu betur og hafnaði hann í 4.sæti með 8,39.
Jakob Svavar Sigurðsson og Fróði frá Litlalandi komu upp úr B-úrslitum og riðu sig upp um eitt sæti, komin í 5. með 8,17. Og síðast en ekki síst Sigurður Sigurðarson með Kjarnorku frá Kálfholti í 6.sæti með 8,06.
|