| Fréttapunktar HSK |
|
|
|
| Skrifað af Ól. Þ. Ólafsson. | |
| miðvikudagur, 25 júní 2008 | |
|
Íþróttahátíð HSK verður haldin á Laugarvatni á laugardag og hefst kl. 10:00. Keppt verður í frjálsíþróttum og íþróttum fatlaðra. Í frjálsíþróttum verður keppt á héraðsleikunum, sem eru fyrir keppendur 11 ára og yngri og á aldursflokkamótinu, sem er fyrir 12 - 14 ára. Í íþróttum fatlaðra verður keppt í þremur greinum frjálsíþrótta. Skráningarfrestur í keppnisgreinar er til kl. 23:00 á fimmtudag. Skráningar berist beint inn á mótaforritið á heimasíðu FRÍ, www.fri.is Upplýsingar um keppnisgreinar og tímasetningar má sjá á www.hsk.is og www.fri.isBláskógaskokk HSK Bláskógaskokk HSK verður haldið á laugardag og hefst kl. 11:00. Hlaupið verður frá Gjábakka, austan Þingvallavatns eftir Gjábakkavegi, að Laugarvatni. Hlaupið er eftir Gjábakkavegi sem oftast er kallaður Lyngdalsheiði. Vegalengdir eru 5 km og 10 mílur með tímatöku. Hægt er að skrá sig á hlaupasíðunni, www.hlaup.is og greiða með kreditkorti. Forskráningu á hlaup.is lýkur föstudaginn 27. júní kl. 21:00. Einnig er tekið við skráningum á netfangið Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það . Eins er skráð á staðnum fyrir hlaup. Nánari upplýsingar veita Kári Jónsson í síma 824 1260 og Ingvar Garðarsson í síma 482 2730 og 698 5730. Nánari upplýsingar á www.hsk.is Kringlukastmót til heiðurs Sveini J. Sveinssyni Sérstakt kringlukastmót verður haldið á Íþróttahátíð HSK á laugardag til heiðurs Sveini J. Sveinssyni frjálsíþróttamanni úr Umf. Selfoss. Mótið fer fram á Laugarvatni kl. 14:00. Sveinn nær þeim einstaka árangri í ár að hafa keppt á héraðsmótum HSK í frjálsíþróttum 60. sinnum í röð frá árinu 1949. Rétt er að geta þess að skráð verður í mótið á staðnum og eru félagar Sveins fyrr og nú hvattir til að mæta og samfagna þessum áfanga með honum og taka þátt í skemmtilegri keppni. Menningarhátíð á Laugarvatni um helgina Menningarhátíð í tilefni 100 ára afmælis Umf. Laugdæla verður haldin á Laugarvatni um helgina. Á laugardag fer fram Íþróttahátíð HSK og Bláskógaskokkið. Kl. 13.00 á laugardag munu þekktir íþróttamenn af félagssvæðinuskora á landsþekkta afreksmenn og kl. 16:30 verður afhjúpað skilti við Laugarvatnshelli í minningu forgöngumanna félagsins, Indriða Guðmundssonar og Jóns Þorvarðarsonar. Menningarhátíð í Íþróttahúsinu á Laugarvatni verður á sunnudag frá kl. 13:00, en þá verður opnuð sögu- og myndlistarsýning í Íþróttahúsinu á Laugarvatni. Kl. 14:00 – 16:00 verður fjólbreytt dagskrá, s.s. svipmyndir úr sögunni, íþróttaskóli Björns Jakobssonar á Laugarvatni, gullöld UMFL, afmælisljóðakeppni – verðlaunaafhending og afmælistónlist. Samæfing í frjálsum Samæfing frjálsíþróttaliðs HSK verður fimmtudaginn 26. júní n.k. á Laugarvatni kl. 20:00. Þó svo bikarkeppni 2. deild falli niður er Meistarmót Íslands framundan og því upplagt að hittast og taka saman æfingu. Enginn bikar í frjálsum í ár hjá HSK Þar sem aðeins eitt lið skráði þátttöku í 2. deild Bikarkeppni FRÍ (HSK) að þessu sinni, þá samþykkti stjórn FRÍ sl. mánudag að keppnin verður ekki haldin í ár, en lið HSK fengi sjálfkrafa keppnisrétt í 1. deild á næsta ári. |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|
|
|