• Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • red color
  • green color
FRÉTTAVEFUR SUÐURLANDS
SUD.IS / SUDURLAND.NET
miðvikudagur
20
ágú
Af vef lögreglunnar PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ól. Þ. Ólafsson.   
miðvikudagur, 23 júlí 2008

Image Nokkur umræða hefur verið um réttmæti þess að ökumenn sem reynast vera með fíkniefni í þvagi en ekki í blóði skuli látnir sæta refsingu þar sem að þeir teljist ekki undir áhrifum fíkniefna.

Ljóst er, eftir að Hæstiréttur kvað upp dóm í máli nr. 260/2008, að lagaramminn er skýr, ökumaður sem reynist með fíkniefni í þvagi telst vera, í skilningi umferðarlaga, undir áhrifum fíkniefna og því ófær um að aka bifreið. Til viðbótar við þetta er rétt að geta þess að rannsókn lögreglu á Selfossi á tilteknum banaslysum hefur leitt í ljós tilfelli þar sem ökumaður sem lést hafði nýverið neytt fíkniefna og fundust merki þeirra í þvagi án þess þó að þau fyndust í blóði hans. Vitað er að viðkomandi var í andlegu ójafnvægi og má leiða líkum að því að hluti af ástæðu ójafnvægisins hafi verið fráhvarf vegna fíkniefnaneyslunnar. Ljóst er að vilji löggjafavaldsins er til þess að taka úr umferð þá sem ekki eru færir um að stjórna ökutæki örugglega. Þykir því rétt að benda á þetta hér sem innlegg í umræðu um hvort réttmætt sé að að sakfella fyrir akstur þeirra sem eru einungis með fíkniefni í þvagi en ekki blóði. Í þeirri umræðu þurfa menn að meta hagsmuni beggja, annarsvegar þeirra sem eru allsgáðir í umferðinni og hinsvegar hinna sem vafi leikur á að séu í nægjanlega góðu andlegu jafnvægi til að aka bifreið.
 
< Fyrri   Næsti >
Smelltu á bannerinn til að skoða úrvalið af frábærum fatnaði hjá Ice Fin
Smelltu á bannerinn til að skoða úrvalið af frábærum fatnaði hjá Ice Fin

Smelltu hér til að skoða frábæru tepping frá Strönd. Teppi á stiga og ganga einnig klæðningar, Sisal mottur, teppaflísara og fl.
Gámar og færanlegir verktakaskúrar og m.fl.
Smelltu á myndina til að sjá heimasíðu Örvéla!
Ný uppgert hús til leigu á besta stað í Kaupmannahöfn! Fullbúið heimili fyrir alla fjölskylduna er besti kosturinn þegar fjölskyldan fer í frí!
lrhenning