• Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • red color
  • green color
FRÉTTAVEFUR SUÐURLANDS
SUD.IS / SUDURLAND.NET
miðvikudagur
20
ágú
Fréttapóstur FSu PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ól. Þ. Ólafsson.   
miðvikudagur, 16 júlí 2008

Image Félag kennara í rafiðngreinum fór í mikla reisu til Beijing í Kína í byrjun júní. Tveir kennarar úr FSu fóru í ferðina, þeir Þorvaldur Guðmundsson og Þór Stefánsson.

Þór skipulagði ferðina ásamt Gunnari Má Antonssyni sem kennir við Iðnskólann í Hafnarfirði. Kínafararnir fóru m.a. í Daxing No. 1 Middle School sem Fjölbrautaskóli Suðurlands er í samskiptum við. Þar var tekið mjög vel á móti hópnum.

Á mánudag var haldinn fundur um námið í hestamennsku og þróun þess á næstu önnum. Skólinn hefur fengið styrk frá menntamálaráðuneytinu til að þróa námið áfram og var rætt um ýmsa möguleika í því sambandi. Einnig var rætt um hvernig styrkja mætti námið í hestamennskunni fjárhagslega.

Á 17. júní var Frjálsíþróttadeild Ungmennafélags Selfoss með kaffisölu í Loftsölum, miðrými Odda, og Björgunarfélag Árborgar var með ýmsar uppákomur á bílastæðunum fyrir framan skólahúsið.

Á miðvikudagsmorgun undirrituðu þeir Davíð Þór Kristjánsson frá Skýrr og skólameistari FSu samning um aðgang skólans að Innu, sem er nemendaskráningarkerfi og stundatöflugerðarforrit.  Langflestir framhaldsskólar landsins hafa notað Innu undanfarin ár.

Á föstudag var gengið frá bréfum og greiðsluseðlum til nemenda FSu. Alls voru send út 1017 bréf til verðandi nemenda á haustönn 2008.  Nú eru sendir út heldur færri greiðsluseðlar en í fyrra.

Greiðsluseðlar Nemendafélagsins koma nú í sér umslagi til nemenda. Mikilvægt er að nemendur greiði nemendafélagsgjöldin svo að félagslíf nemenda verði öflugt.

Gengið verður frá innritun á Nemendagarða FSu í vikunni 23. - 27. júní og að því loknu verða nemendum sendar upplýsingar um hvort þeir hafa fengið inni á görðunum.

Þeir sem ætla að staðfesta skólavist þurfa að greiða innritunargjöldin fyrir 4. júlí 2008.

Veffréttir FSu verða í sumarleyfi til 11. ágúst.

Vikan framundan.                                  
Skrifstofa skólans verður opin vikuna 23.-27. júní frá kl. 9:30 -13:30.
Skrifstofa skólans verður lokuð frá 30. júní til 5. ágúst kl. 13 vegna sumarleyfa.
Þeim sem þurfa að senda fyrirspurnir eða upplýsingar er bent á að senda þær á netfangið Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það . Minnt er á faxnúmer skólans vegna innritunargagna: 480-8188

 
< Fyrri   Næsti >

Smelltu hér til að skoða frábæru tepping frá Strönd. Teppi á stiga og ganga einnig klæðningar, Sisal mottur, teppaflísara og fl.
Gámar og færanlegir verktakaskúrar og m.fl.
Smelltu á myndina til að sjá heimasíðu Örvéla!
Ný uppgert hús til leigu á besta stað í Kaupmannahöfn! Fullbúið heimili fyrir alla fjölskylduna er besti kosturinn þegar fjölskyldan fer í frí!
lrhenning