• Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • red color
  • green color
FRÉTTAVEFUR SUÐURLANDS
SUD.IS / SUDURLAND.NET
miðvikudagur
20
ágú
Kotmót haldið í 56 skipti. PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ól. Þ. Ólafsson.   
mánudagur, 21 júlí 2008
Image Kristilegt mót um verslunarmannahelgina til að lofa og upphefja Jesú Krist, Kotmót er nú haldið í 56 skipti. Boðið
verður upp á lifandi tónlist, líflegar samkomur, varðeldur auk þess verður fjölbreytt dagskrá fyrir börnin á sérstöku
barnamóti. Mótið verður haldið í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð 31. júlí til 4. ágúst og búast mótshaldarar við fjölmenni
en á undanförnum árum hafa á milli 3000 til 4000 þúsund manns lagt leið sína á Kotmót, það eru allir velkomnir á
Kotmót.
Yfirskrift mótsins er: "Guð er kærleikur". Aðal ræðumaður mótsins er Tony Fitzgerald frá Bandaríkjunum, en auk
hans stígur fjöldi karla og kvenna, íslenskra og útlendra, í stólinn til að kenna, uppfræða og segja frá lífsreynslu sinni.
Auk aðalsamkomanna verður m.a. boðið upp á söngvastund í umsjá Hafliða Kristinssonar fjölskylduráðgjafa,
samkomu í umsjá Erdnu Varðardóttur og Jesúkvenna, fjölskyldusamveru i umsjá Barnamóts, dagskrá í boði ungs
fólks undir stjórn Andra Ómarssonar, varðeld þar sem Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn stjórnar fjöldasöng,
UnG-stund (Undir Náð Guðs) í umsjá Magnúsar Stefánssonar trommara og eins verða gestir frá Færeyjum með
stund á mótinu.
Samverustundirnar verða haldnar innandyra í Örkinni. Góð stæði fyrir tjöld og gistivagna eru á mótssvæðinu.
Neysla áfengis og vímuefna er bönnuð og gæsla viðhöfð á svæðinu. Þannig er reynt að skapa allsgáða og örugga
umgjörð um skemmtilega samveru eldri og yngri mótsgesta.
Nánari upplýsingar um dagskrá og fl. er að finna á heimasíðu mótsins www.123.is/kotmot og hjá Stefáni
Garðarssyni í síma 663 4656 eða Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það .
 
< Fyrri   Næsti >
Smelltu á bannerinn til að skoða úrvalið af frábærum fatnaði hjá Ice Fin

Smelltu hér til að skoða frábæru tepping frá Strönd. Teppi á stiga og ganga einnig klæðningar, Sisal mottur, teppaflísara og fl.
Gámar og færanlegir verktakaskúrar og m.fl.
Smelltu á myndina til að sjá heimasíðu Örvéla!
Ný uppgert hús til leigu á besta stað í Kaupmannahöfn! Fullbúið heimili fyrir alla fjölskylduna er besti kosturinn þegar fjölskyldan fer í frí!
lrhenning