| Landsmótið. Föstudagur 04.júlí 2008 |
|
|
|
| Skrifað af Ól. Þ. Ólafsson. | |
| laugardagur, 05 júlí 2008 | |
Föstudagurinn hófst með þvílíkri hitabylgju og sólskini, það skýjaði aðeins með deginum en allt var velkomið eftir rokið undanfarna daga. Dagsskrá hófst með milliriðlum í B-flokk gæðinga. Hér eru niðurstöður úr milliriðlum :
1 Ísleifur Jónasson / Röðull frá Kálfholti 8,68 B-Úrslit í B-Flokk verður í dag Laugardaginn og hefst stundvíslega kl. 09:00. A-Úrslit verður á Sunnudaginn strax eftir hádegi kl. 13:00 Eftir hádegi hófst yfirlitssýning stóðhesta og byrjað var á 4.vetra stóðhestum, í þeim flokki stendur hæstur Seiður frá Flugumýri II með frábæran dóm aðeins 4.vetra gamall, 8,42 í aðaleinkunn. M.a. 9,0 fyrir stökk. Seiður er undan Klett frá Hvammi sem á þónokkuð af afkvæmum í þetta skiptið inni á landsmóti. Og Sif frá Flugumýri II. Klettur er undan Gust frá Hóli og Dótlu frá Hvammi og Sif er undan Kormáki og Söndru frá Flugumýri.
IS2004158629 Seiður frá Flugumýri II
IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi
IS2004165890 Kappi frá Kommu
IS2003181962 Ómur frá Kvistum
IS2003156956 Kvistur frá Skagaströnd
IS2003188470 Hnokki frá Fellskoti Flokkur 6.vetra stóðhesta var haldið strax á eftir og þar stendur efstur Glotti frá Sveinatungu, rauðblesóttur að lit. En hann hefur hlotið 8,88 fyrir hæfileika og 8,11 fyrir sköpulag. Þar með stendur hann í 8,58 í aðaleinkunn.
IS2002136610 Glotti frá Sveinatungu
IS2002187805 Möller frá Blesastöðum 1A
IS2002165311 Fróði frá Staðartungu Á er það eftir flokkur 7.vetra og eldri. Gaumur er enn efstur, með 8,69 í aðleinkunn, með 9.05 fyrir hæfileika og 8,13 fyrir sköpulag, 9.5 fyrir tölt og fet sem sést ekki oft. Gaumur er jarpur hestur undan Orra frá Þúfu og gæðingamóðurinni Hildi frá Garðabæ og er þar með albróðir Garps frá Auðsholtshjáleigu.
IS2001187053 Gaumur frá Auðsholtshjáleigu
IS2001187041 Þröstur frá Hvammi
IS1999187197 Hrannar frá Þorlákshöfn 150 m. Skeið sigraði Sigurður Óli Kristinsson með hana Blök frá Kílhrauni, hann fór á tímanum 14.72 sek. en hann lá aðeins fyrra sprett en það var nóg.
Þriðji varð Teitur Árnason, ungur knapi á Veigari frá Varmalæk, hann lá einungis seinna sprettinn á 15.08 sek. 250 skeið var haldið strax á eftir, þar sigarði höfðingin Sigurbjörn Bárðarson og Flosi frá Keldudal og hljóð hann á 23,01 sek. Þórarinn Eymundsson og moldótta merin Ester frá Hólum hljópu einnig á 23,31 sek. En einnkunn réði þar sætaröðum, en Sigurbjörn hlaut 7,59 og Þórarinn 7,35. Daniel Ingi Smárason á Óðni frá Efsta-Dal hljóp á 23,42 sek. Og náði þriðja sætinu. Á sunnudaginn verður spennandi sprettur, en þá hefst 100 metra skeið og þar keppa keppendur um glænýjan Toyota Hilux, en ef að heimsmet verður slegið þá hefur Toyota ákveðið að gefa sigurvegaranum eitt stykki Hilux. Heimsmetið var sett á seinasta Landsmóti, af henni Drífu og Sigurð Sigurðssyni, en það er 7,18 sek. Um kvöldið hófst sýning ræktunarbúa og B-úrslit í tölti. 12 Ræktunarbú komu fram og stóðu sig með prýði, allt gullfalleg hross og flestir með eitt tvö hross á landsmóti ef ekki fleiri. Góð ræktun að skila sér. Tvö ræktunarbú voru boðin, þau hafa hlotið Ræktunarverðlaunin vinsælu 3 sinnum, það eru ræktunarbúin Fet og Auðsholtshjáleiga. Auðsholtshjáleiga mætti með heil 20 hross á sýninguna. Fet hefur verið tilnefnd 12 sinnum sem ræktunarbú ársins, Fet mætti m.a. með Jónínu frá Feti og Vilmund frá Feti.
Eftirfarandi Ræktunarbú tóku þátt: Blesastaðir 1a hlaut sigur í símakostningum og verður sýnt aftur í kvöld á kvöldvöku.
B-úrslit í tölti hófust með smá seinkun en var þrátt fyrir allt mjög spennandi. Fróði frá Litlalandi sigraði B-Úrslit og er þar með komin með rétt til þáttöku í A-Úrslitum, til hamingju með það.
5 Jakob Svavar Sigurðsson / Fróði frá Litlalandi 8,39
|
|
| Síðast uppfært ( sunnudagur, 06 júlí 2008 ) |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|
|
|