|
Skrifað af Ól. Þ. Ólafsson.
|
|
miðvikudagur, 23 júlí 2008 |
|
Í liðinni viku voru 6 ökumenn kærðir fyrir að aka undir áhrifum ávana og fíkniefna. Einn þeirra ók bifreið sinni út af vegi í sumarhúsabyggð í Grímsnesinu.
Hann reyndist ölvaður og svaraði jákvætt við prófun á kókaíni en bar því við að neysla þessara vímugjafa hefði farið fram eftir óhappið. Annar ók á vegrið í Kömbunum, hélt áfram för sinni og var síðan stöðvaður við Kögunarhól af lögreglumönnum við eftirlit. Sá reyndist, auk þess að hafa neytt kókaíns, undir áhrifum áfengis.
Auk þessara voru 8 kærðir fyrir að aka ölvaðir en einn þeirra ók bifreið sinni út af vegi skammt frá Flúðum. Annar ók bifreið sinni í veg fyrir rútu og síðan af vettvangi án þess að stöðva. Hann fannst á Laugarvatni og var færður á lögreglustöð á Selfossi til skýrslugjafar og tilheyrandi sýnatöku.
|
|
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 23 júlí 2008 )
|