|
Úr dagbók lögreglunnar á Hvolsvelli |
|
|
|
|
Skrifað af Ól. Þ. Ólafsson.
|
|
mánudagur, 14 júlí 2008 |
Nýliðin vika var mjög góð hjá lögreglumönnum á Hvolsvelli, samkvæmt færslu Guðmundar Inga Ingasonar, varðstjóra á Kirkjubæjarklaustri.
Utan þess að maður féll af hestbaki og var fluttur með þyrlu í bæinn en hann hlaut opið beinbrot. Dansleikur var haldinn á laugardagskvöldið í Leikskálum Vík í Mýrdal og var fjölmennt á dansleiknum. Fór dansleikurinn vel fram en tvisvar var kallað til lögreglu á staðinn en í öðru tilfellanna var um veikindi að ræða og var ungur karlmaður fluttur á Heilsugæsluna í Vík, en fékk að fara þaðan fljótlega.
|