• Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Auto width resolution
  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
  • default color
  • red color
  • green color
FRÉTTAVEFUR SUÐURLANDS
SUD.IS / SUDURLAND.NET
miðvikudagur
20
ágú
Úr dagbók lögreglunnar PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Ól. Þ. Ólafsson.   
mánudagur, 19 maí 2008

Image Í vikunni frá 13. til 20. maí voru 4 ökumenn kærðir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Við leit í bíl eins þeirra fann fíkniefnahundurinn Bea um það bil 10 grömm af ætluðu amfetamíni og um 2 grömm af ætluðu kókaíni.

Fjórir voru kærðir fyrir að aka undir áhrifum áfengis á sama tímabili.

62 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt, flestir innanbæjar en í vikunni var gert átak í mælingu á ökuhraða í þéttbýli á Selfossi. Fyrirhugað er að halda því áfram á næstu dögum og fara þá í Hveragerði, Þorlákshöfn Stokkseyri og Eyrarbakka og einnig í þéttbýlinu í uppsveitunum. Við eftirlitið verða m.a. notaðir ómerktir bílar.

Þrír ökumenn voru kærðir fyrir að tala í farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur bifreiðar sinnar.

Höfð voru afskipti af réttindalausum manni sem ók óskráðu bifhjóli um götur og stíga í Reykholti. Sá má búast við sekt fyrir brot sitt. Þá var kvartað undan akstri fjorhjóla í fjörunni og melhólum austan Óseyrarbrúar í gær. Ekki náðist á gerendur en á þessu svæði er fuglavarp í blóma og ástæða fyrir menn að huga að því. Þá er rétt að minna á að akstur utan vega er bannaður.

Átta umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í vikunni. Í einu þeirra fór bifreið fram af Grafningsvegi og hafnaði ofan í skurði um það bil 5 til 6 metrum neðar. Ökumaður og tvö börn voru flutt á sjúkrahús í Reykjavík. Börnin eru talin lítið eða óslösuð en ökumaðurinn er með áverka á baki.

Aðfaranótt sunnudags var ekið utan í gráa Mazda bifreið á bifreiðastæði við skemmtistaðinn Hvíta húsið á Selfossi. Ökumaður bifreiðarinnar fór af vettvangi án þess að tilkynna um slysið og óskar lögreglan eftir því að hafa tal af hugsanlegum vitnum að árekstrinum.

Þann 15. maí var tilkynnt um að utanborðsmótor hefði verið stolið úr bát við Haganesvík við Þingvallavatn. Um er að ræða Mariner mótor, silfurgráan að lit, 4 hestöfl.

Þann 17. maí var tilkynnt um þjófnað á farsíma úr húsi á Selfossi. Lögreglumenn við eftirlit fundu símann í fórum 17 ár stúlku sem þeir höfðu afskipti af daginn eftir og reyndist sú hafa verið gestkomandi í húsinu og launað fyrir gestrisnina með því að stela símanum.
 
 

 
< Fyrri   Næsti >
Smelltu á bannerinn til að skoða úrvalið af frábærum fatnaði hjá Ice Fin

Innskráning

Muna eftir mér
Ekki með aðgang? Búðu til einn

Skráðu fría auglýsingu með mynd! SMELLA HÉR

Smelltu hér til að sjá hvaða kvikmyndir eru til sýninga í Selfossbíó
Smelltu á linkinn til að senda inn viðburð!
 
Dýralæknaþjónsuta Suðurlands að Stuðlum, rekur einnig verslun með fóður og gæludýravörur!
Netverslun Tómstundahússins, þar sem ALLT fæst
Skemmtun sem kemur adrenalíninu af stað í stórum skömmtum!!!!
Pallhýsi á ýmsar gerðir bíla. Smella HÉR!

Smelltu hér til að skoða frábæru tepping frá Strönd. Teppi á stiga og ganga einnig klæðningar, Sisal mottur, teppaflísara og fl.
Gámar og færanlegir verktakaskúrar og m.fl.
Smelltu á myndina til að sjá heimasíðu Örvéla!
Ný uppgert hús til leigu á besta stað í Kaupmannahöfn! Fullbúið heimili fyrir alla fjölskylduna er besti kosturinn þegar fjölskyldan fer í frí!
lrhenning