- Villa
|
||||||||||||
|
FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta |
||||||||||||
| Síða 1 af 100 | ||||||||||||
- Námskeið: Jarðræktarforritið Jörð.is, Höfn
- Námskeið: Jarðræktarforritið Jörð.is, Hellu
-
Neita að borga hærra auðlindagjald
Sjávarútvegsmenn segja ekki koma til greina að þeir greiði hærra verð fyrir afnot af auðlindinni, þrátt fyrir að samningaleið um úthlutun kvótaheimilda verði farin.
Meirihluti sáttanefndar um fiskveiðistjórnunarkerfið leggur til að áfram verði stuðst við aflamarkskerfið og svokölluð samningsleið verði farin við úthlutun veiðiheimilda. Í henni felst að kvótaheimildir eru innkallaðar og svo gengið til samninga við núverandi rétthafa veiðiheimildanna um afnotarétt til tíu til tuttugu ára. Útvegsmenn segja ekki koma til greina að þeir greiði hærra verð fyrir afnot af auðlindinni, en núgildandi veiðigjald geri ráð fyrir en það skilar þjóðarbúinu tæpum þremur milljörðum króna á fiskveiðiárinu.Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir það markmið útgerðarmanna að greiða sem mest til ríkisins fyrir afnot af auðlindinni. Það sé gert í formi rekstrar á sjálfbærum og arðbærum sjávarútvegi, að fá sem mest fyrri vöruna og að gera þetta með sem minnstum tilkostnaði. Þannig fái ríkið mest út úr þessu. Nú séu þeir með veiðigjald þar sem þeir greiða 9,5% af aflaverðmætinu og þeir sjái ekki ástæðu til að það gjald verði hækkað. Sjávarútvegsráðherra vildi ekki veita viðtal vegna málsins í dag. Ólína Þorvarðardóttir, varaformaður sjávarútvegsmanna sakar útvegsmenn um skort á samningsvilja og ekki verði unað við óbreytt auðlindagjald. Hún segir útgerðina taka úr sjó aflaverðmæti upp á annað hundrað milljarða króna sé tekið mið af síðasta ári, og því segi það sig sjálft að núverandi auðlindagjald sé ekki að skila neinum arði í þjóðarbúið.
Málaflokkar: Innlendar fréttir Sjávarútvegsmál Stjórnmál -
Hefur fulla trú á Landeyjahöfn
Hermann Guðjónssson siglingamálstjóri segir að í útreikningum Siglingamálastofnunar hafi verið gert ráð fyrir því að sandurinn við Landeyjahöfn hreyfðist mikið. Hann hefur fulla trú á því að höfnin verði sú mikla samgöngubót sem þegar hefur sýnt sig.
Sandrif hefur lokað mynni Landeyjahafnar undanfarið og hefur þess vegna þurft að beina siglingum Herjólfs til Þorlákshafnar. Hermann segir að sérstakar aðstæður í náttúrunni nú séu langt utan við þann ramma sem gert var ráð fyrir þegar höfnin var hönnuð. Ekki hafi verið reiknað með svo miklum austanáttum né eldgosi.Höfn í Bakkafjöru hefur verið umdeild, ekki síst vegna þess að talið er að Markarfljót dæli um 150 þúsund rúmmetrum af efni út í hafið á ári. Í samgönguáætlun er gert ráð fyrir því að það kosti 34 milljónir á ári að reka höfnina, af þeim fara 25 milljónir í viðhaldsdýpkun. Hermann segir að viðbótarkostnaður vegna stöðunnar núna sé ennþá óverulegur.
Málaflokkar: Innlendar fréttir Suðurland -
Þorlákshöfn verði varahöfn Herjólfs
Vegagerðin og bæjaryfirvöld í Ölfusi ræða um gerð samkomulags um að Þorlákshöfn verði varahöfn Herjólfs. Ferjan mun sigla til Þorlákshafnar næstu daga þar til Landeyjahöfn verður opnuð á ný.
Þrátt fyrir vandræði með Landeyjahöfn vill Vegagerðin enn að hún verði aðalhöfn Herjólfs. Fulltrúar Vegagerðarinnar og Ölfuss ræddu málin á fundi í dag. Ákveðið var að halda áfram umræðum um mannvirki vegna Herjólfs í Þorlákshöfn með það að leiðarljósi að gera samkomulag til lengri tíma.Þráinn Jónsson, formaður hafnarstjórnar Þorlákshafnar, nefnir sem dæmi að nýta megi Þorlákshöfn sem varahöfn í samræmi við gjaldskrá hafnarinnar með ákveðnum afslætti. Auk þess sé eðlilegt að Vegagerðin greiði fyrir viðhald á mannvirkjum.Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar þar til Landeyjahöfn verður opnuð aftur. Farnar verða tvær ferðir á dag, frá Vestmannaeyjum klukkan 07:30 og 15:15 og frá Þorlákshöfn klukkan 11:15 og 18:45.
Málaflokkar: Innlendar fréttir Suðurland -
Vilja kaupa Hitaveitu Hveragerðis
Grunnskólinn í Hveragerði þarf að greiða Orkuveitunni 600 þúsund krónum meira á ári vegna gjaldskrárhækkana.
Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðis mun á bæjarstjórnarfundi á morgun leggja til að hafnar verði viðræður við Orkuveituna um að Hveragerði kaupi aftur Hitaveitu Hveragerðis sem OR keypti fyrir sex árum. Nú þurfa íbúar í Hveragerði að greiða 35% meira fyrir heita vatnið en áður. Aldís Hafsteinsdóttir er bæjarstjóri í Hveragerði. Hún segir bæjarbúa nú afar ósátta. Deilt hafi verið um kaup Orkuveitunnar á hitaveitu bæjarins á sínum tíma. Segir hún að bæði hafi Hvergerðingum þótt þeir fá lítið fyrir Hitaveituna á sínum tíma og eins sé auðlindin til staðar í bæjarfélaginu. Það þurfi ekki að ganga lengi um bæinn til að koma niður á heitt vatn. Hún segir bæinn hafa byggst upp vegna aðgangs að ódýrri og góðri orku.Bæjarsjóður fái einnig á sig mikið högg. Kostnaður við að hita upp grunnskóla bæjarsins hækkar um ríflega 600 þúsund krónur á ári svo dæmi sé tekið. Hún segir OR hafa það hlutverk að skaffa þjónustuþegum sínum ódýra orku og nú hafi fyrirtækið færst ansi langt frá því hlutverki sínu.
Málaflokkar: Innlendar fréttir Suðurland Stjórnmál -
Herjólfur aftur til Þorlákshafnar
Herjólfur mun sigla aftur til Þorlákshafnar á morgun. Farið verður frá Eyjum klukkan 7:30 í fyrramálið og frá Þorlákshöfn klukkan 11:15.
Landeyjahöfn verður ekki opnuð næstu daga og því mun Herjólfur sigla til Þorlákshafnar. Dæluskip sem legið hefur í höfn í Reykjavík hefur tafist vegna bilana en ráðgert er að það muni sigla til Landeyjahafnar á föstudag. Að mati Siglingastofnunar eru það gosefni sem borist hafa með austanátt í mynni nýju hafnarinnar sem valda því að hún er of grunn fyrir Herjólf.Herjólfur fór eina ferð til Þorlákshafnar í dag en hætt var við siglingar í Landeyjahöfn eftir að hafnsögubáturinn Lóðsinn festist á sandrifi milli hafnargarða nýju hafnarinnar. Skipstjóri Lóðsins segir að báturinn hafi lent á grynningum þrisvar sinnum. Einu sinni hafi báturinn setið fastur í nokkurn tíma og þá hafi eina leiðin til að losa hann aftur verið sú að bakka honum úr hafnarmynni Landeyjahafnar.Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar þar til Landeyjahöfn verður opnuð aftur. Farnar verða tvær ferðir á dag, frá Vestmannaeyjum klukkan 07:30 og 15:15 og frá Þorlákshöfn klukkan 11:15 og 18:45.
Málaflokkar: Innlendar fréttir Suðurland



Lögreglunni bárust í síðustu viku níu tilkynningar um þjófnað. Evinrude utanborðsmótor og 25 lítra bensíntanki var stolið úr bátaskýli í Miðfelli við Þingvallavatn. Brotist var inn í sumarbústað við Lækjarbakka í Grímsnesi og þaðan stolið 50 tommu flatskjá. DVD spilara var stolið úr sumarbústað í Vaðneslandi.
Hjónaklúbbur Selfoss er 45 ára á árinu og endurvekur nú gömlu góðu Pokaböllin. Hjónaklúbbur Selfoss er einn elsti starfandi hjónaklúbbur á landinu hann var stofnaður á miðgóu 1964 og er því 45 ára um þessar mundir. Í fyrstu stjórninni voru
